Dagskrá HönnunarMars 2010 | Leir- og textílhönnun

Jökulsprungur | Kynning

Textíll, Lokastígur 28, 101 Reykjavík, gegnt Hallgrímskirkju
18.03 - 21.03

Aðalbjörg Erlendsdóttir fata- og textílhönnuður framleiðir textílvöru undir merkinu Budda design.

Hún hefur þróað nýja gerð af efnum undir hughrifum frá hinum óútreiknanlegu jökulsprungum. Efnin eru í tveimur lögum; það efra er mótað í munstur og því næst pressað fast á límkennt undirlag. Sjá nánar á www.budda.is.
















Dagskrá