Epal,
Skeifan 6, 108 Reykjavík
18.03
- 21.03
Epal
er 35 ára á þessu ári. Frá byrjun hefur leiðarljós okkar verið að kynna og auka
skilning á og virðingu fyrir góðri hönnun. Glæsileg hönnun þekktra meistara á
Norðurlöndum og víðar úr Evrópu, að ógleymdum verkum íslenskra hönnuða, hefur
hlotið veglegan sess í Epal, hvort sem um er að ræða húsgögn, ljós,
gluggatjaldaefni, gjafavöru eða margvíslega nytjahluti fyrir heimilið.
Á
HönnunarMars 2010 mun Epal sýna verk úr íslensku lerki og birki, hluti sem
prýða frímerki Íslandspósts og margt fleira tengt nýrri íslenskri hönnun eftirtalinna
aðila:
Chuck Mack,
Erla Sólveig Óskarsdóttir,
Sigurður Gústafsson, Guðrún Margrét og
Oddgeir,
Katrín Ólína Pétursdóttir,
Jón Björnsson,
Hanna Jónsdóttir,
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir, Karna Jónsdóttir,
Garðar Eyjólfsson,
Dögg Guðmundsdóttir, Manfreð Vilhjálmsson,
Þórdís Helgadóttir,
Hugdetta e.h.f,
Stefán Pétur, Fjönir
Hlynsson,
Anna Þórunn,
Steinunn Vala,
Preggioni,
Signý Kolbeinsdóttir, Heima,
Dieter Roth,
Kúltúr og Kaos,
Secret North,
Arkís.