Ármúli 34, 108 Reykjavík
18.03 - 21.03
Sýrusson Hönnunarhús er flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði að Ármúla 34.
Af því tilefni frumsýnir fyrirtækið fimm nýja gripi á HönnunarMars, þar á meðal Reykjavík-stólinn og Rúbik-sófasettið.
Sýrusson Hönnunarhús býður alla velkomna í sýningarsal sinn, sem er fullur af spennandi íslenskri hönnun og framleiðslu, þar sem tímamótunum verður fagnað með léttum veitingum.