Dagskrá HönnunarMars 2010 | Grafísk hönnun

FÍT 2010 | Verðlaun

IÐA Lækjargötu 2a
17.03
18:00

Hönnunarkeppnin FÍT 2010 | Grafísk hönnun á Íslandi, er árleg samkeppni FÍT, Félags íslenskra teiknara. Markmið keppninnar er að vekja athygli á þeim verkum sem skarað hafa fram úr í grafískri hönnun á árinu og þeim sem komu að hönnun þeirra. Einnig á keppnin að auka vitund fyrir því sem vel er gert og auka hróður frumlegra og snjallra út- færslna. Keppnin gefur tilefni til skoðanaskipta og umræðna, vekur athygli á sköpun, straumum og stefnum og kveikir frekari áhuga á vandaðri grafískri hönnun innan atvinnulífsins, meðal almennings og síðast en ekki síst þeirra sem við fagið starfa.

Verðlaunaafhendingin fer fram í IÐU miðvikudaginn 17. mars klukkan 18. Við sama tækifæri verður opnuð sýning á viðurkenndum og verðlaunuðum verkum úr keppninni.














Dagskrá