Dagskrá HönnunarMars 2010 | Fatahönnun


Tískusýning 2. árs nema LHÍ

NASA, Austurvöllur, 101 Reykjavík
20.03
21:00

Fatahönnunarnemar á öðru ári við LHÍ halda sína árlegu tískusýningu laugardaginn 20. mars á Nasa við Austurvöll.

Að þessu sinni sýna 15 nemendur metnaðarfullar fatalínur sínar, sem eru afrakstur þrotlausrar vinnu undanfarinna vikna. Á sýningunni gefur að líta nýjustu strauma og ferskustu hugmyndir fatahönnuða framtíðarinnar þar sem frumleiki, víðsýni og ekki síst bjartsýni ráða ríkjum.

Fatahönnun er í örum vexti á Íslandi og vill námsbrautin í fatahönnun taka virkan þátt í þeirri þróun.














Dagskrá