Dagskrá HönnunarMars 2010 | Fatahönnun


Reykjavík Fashion Festival | 19.03



Ó. Jónsson & Kaaber-húsið, Sætúni 16, 105 Reykjavík
19.03.
20:00   

Reykjavik Fashion Festival, sem haldið er nú í fyrsta sinn, hefst föstudaginn 19. mars.

Þá munu níu af þeim tuttugu og tveimur fatahönnuðum sem taka þátt í hátíðinni sýna nýjar línur sínar í gömlu kaffiverksmiðju Ó. Jónsson & Kaaber við Sætún.

Fyrsta sýningin hefst kl 20:00 en þá munu E-label, EMAMI og Sruli Recht kynna nýjar fatalínur sínar.

Klukkan 20:45 munu Royal Extreme, Kron Shoes, ELM, Thelma Bjork og GoWithJan sýna línur sínar.

Mundi lokar kvöldinu með sýningu sinni klukkan 21:30.

Hönnuðum er raðað saman eftir auganu þar sem hver þeirra hefur sín sérkenni. Að tískusýningunum loknum heldur hátíðin áfram á Nasa við Austurvöll þar sem Reykjavik Fashion Festival leggur áherslu á að leiða saman það nýjasta í tónlist jafnt sem tísku.

www.rff.is














Dagskrá