Dagskrá HönnunarMars 2010 | Fatahönnun


PopUp verslun

Grandagarður 2, 101 Reykjavík
20.03
11:00 - 18:00


PopUp er farandsverzlun fyrir fatahönnuði á Íslandi.
Verzlunin var stofnuð af fjórum hönnuðum í ágúst 2009. PopUp er vettvangur þar sem ný fatahönnun er kynnt og seld til kúnnans án álagningar milliliða.  

Við notkun tiltækra rýma skapar verzlunin sér nýtt heimili í hvert sinn sem hún opnar dyr sínar ásamt nýrri samsetningu hönnunar og vörumerkja. Verzlunin er því aldrei með sama sniðinu og mótar sig hratt að hverjum stað í stuttan tíma í senn.  

Með hverjum viðburði sínum vinnur PopUp  að því að styðja fatahönnuði og býður nýjum hönnuðum  þessarar fagstéttar tækifæri á að koma hönnun sinni á framfæri.

Vörumerki og Hönnuðir sem taka þátt í PopUp Verzlun eru:  
A.C.Bullion | Aaron C. Bullion
Anna Soffía | Anna Soffía Árnadóttir
Dýrindi | Elín Hrund Þorgeirsdóttir
Eight Of Hearts | Þórey Björk Halldórsdóttir
Elva | Elva Dögg Árnadóttir
Hlín reykdal | Hlín Reykdal
IBA | Inga björk Andrésardóttir
Luka |  Brynhildur Þórðardóttir & Gunnhildur Þórðardóttir
milla snorrason | Borghildur Gunnarsdóttir
Rey | Rebekka Jónsdóttir
Sara María | Sara María Skúladóttir
Serendipity | Guðbjörg Jakobsdóttir
Sigrún Halla | Sigrún Halla Unnarsdóttir
Sonja Bent | Sonja Bent
Varius | Ragnheiður I Margeirsdóttir & Íris Sigurðardóttir
Veðramen | Erna E. Skúladóttir      

Stjórnendur PopUp Verzlunar eru Þórey Björk Halldórsdóttir & Guðbjörg Jakobsdóttir, Grafísk hönnun eftir Nicole Nicolaus, Listrænn stjórnandi er Aaron C. Bullion.   www.facebook.com/PopUp.verzlun
popup.verzlun@gmail.com 














Dagskrá