27.03 | 28.03 kl.17:00 - 19:00 | Saltfélagshúsið, Grandagarði 2, 101 Reykjavík
Hvernig getur hugmyndaríkt hústökufólk komið sér fyrir í og umhverfis
hrá iðnaðarhúsnæði? Hvernig byggjum við upp umhverfi sem ýtir undir
skapandi hugsun, þverfaglegt samstarf og fjölbreytni?
PlugIn Studio er opin vinnustofa sem arkitektastofan KRADS ARKITEKTÚR heldur í samvinnu við Hugmyndahús Háskólanna.
Hugmyndahús
Háskólanna er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Háskóla
Reykjavíkur. Áform skólanna um að setja á fót frumkvöðlasetur þar sem
kraftar skólanna sameinast um að skapa vettvang fyrir sprotafyrirtæki
er nú að verða að veruleika. Margar hugmyndir eru uppi á borðinu um
hvernig næstu skref verða stigin. Vinnustofunni er ætlað að kasta öllum
þessum hugmyndum á borðið, róta í þeim - bæta við og breyta - og þannig
safna í hugmyndabanka sem gæti nýst fyrsta holli af hústökufólki sem
kemur í Hugmyndahúsið.
Vinnustofan er staðsett í Alliance
húsinu við Tryggvagötu , sem áður hýsti Saltfélagið, og verður hún opin
frá 12-19 föstudag 27. mars og laugardaginn 28. mars. Allir eru
velkomnir að koma og taka þátt. Sérstakir gestir koma og taka þátt í
umræðum bæði á föstudag og laugardag, milli klukkan 17 og 19.
Sunnudaginn 29. mars verða sýnd þau verkefni sem unnin hafa verið á vinnustofunni á þessum tveimur dögum.
Nánari upplýsingar í síma 840 47 71