Frá Viborg til www

26.07 kl.9:00 - 22:00| 27.03 kl.9:00 - 18:00| 28.03 kl.12:00 - 17:00| 29.03 kl.12:00 - 17:00 | Handverk og hönnun, Aðalstræti 10, 101 Reykjavík

Verið velkomin á útskriftarsýningu Katrínar Jóhannesdóttur „frá Viborg til www“ í HANDVERKI OG HÖNNUN (á Skörinni), Aðalstræti 10 í Reykjavík.

Á sýningunni verður lokaverkefni Katrínar úr vélprjóni frá Textilseminariet í Viborg til sýnis. Prjónaðir kjólar, peysur og fylgihlutir, hannað með íslenska þjóðbúninginn í huga og hugsað þannig að hverja flík sé hægt að nota á fleiri en einn hátt.

Sýningin stendur til 31. mars.

Sjá nánar á www.katy.is

www.handverkoghonnun.is