OSUSHI
26.03 kl.16:00 - 17:00 | Lækjargata 2a, 101 Reykjavík
OSUSHI er ekki veitingastaður samkvæmt því sem maður á að venjast, því að diskarnir koma til gestanna eftir sérhönnuðu færibandi og svo stjórnar hver og einn því sjálfur hversu mikið hann borðar og borgar. OSUSHI var opnaður í desember árið 2005 og er þá eini staðurinn á Íslandi með færibandi.
OSUSHI leggur áherslu á ferskt hráefni því er áherslan lögð á einfaldleikann í hönnuninni, með því að nota fáa liti og einföld form er maturinn er hafður í aðalhlutverki. Guðrún Atladóttir innanhússhönnuður leitaðist við að ná fram hönnun sem væri landamæralaus, tímalaus og gæti gengið jafnt um miðjan dag sem að kvöldlagi.
Á hönnunardögum verður boðið upp á sérhannaða sushibita byggða á íslenskri matarhefð s.s. hangikjöt, saltfisk, ofl. Þeir munu vera á færibandinu alla dagana. En Guðrún mun kynna hönnunarferlið hjá Osushi.