Opnar geymslur | 10 ára starfsafmæli Hönnunarsafns Íslands

27.03 kl.12| 28.03 kl.14:00 - 16:00 | 29.03 kl.14:00 - 16:00 | Lyngás 7, 210 Garðabær

Starfsfólk Hönnunarsafnsins mun veita leiðsagnir um geymslur Hönnunarsafns Íslands í Garðabæ, en þetta er í fyrsta sinn sem almenningi gefst kostur á að skoða geymslurnar okkar. Leiðsögnin mun varpa ljósi á vinnubrögð við innsöfnun hluta, fjallað verður um sögu nokkurra muna úr safneigninni og rætt hvaða hlutverki safnið gegnir innan íslenskrar safnaflóru, gagnvart miðlun og þekkingu á íslenskri hönnun. Kaffiveitingar í boði. Leiðsagnir: föstudaginn 27. mars kl. 12 laugardaginn 28. mars kl. 14 og 16 sunnudaginn 29. mars kl. 14 og 16.

Nánari upplýsingar í síma 840 47 96